14.12.2008 20:50:41 / oscar

.

Jæja ! ég er hættur með þessa siðu ! menn hafa sagt að grasið sé ekki grænna hinum meginn ! ég tel það vera tóma þvælu ! eg er farinn á wordpress,    oskar7.wordpress.com   . eg ætla að halda þeirri síðu út á meðann ég verð útá Tenerife yfir jólin og kannski lengur ef eg nenni.. þar á eg eftir að henda inn hetjusögum og ævintýrum mínum úr fyrirheitna landinu !! lifið heil !

» 1 hafa sagt sína skoðun

29.11.2008 14:44:04 / oscar

..

ákvað að skella inn einni færslu til að láta vita að ég er enn þá á lífi...
Seinasta helgi var nu frekar skrautlegri kantinum, skelltum okkur á skímó ball...sem var auðvitað alveg vangefið og ég alveg andsetinn...ég ætla nu ekki að fara að lýsa þessu balli i einhverjum smáatriðum...enn það var tekið vel á því og svo tókst mér að láta stela G-star jakkanum minum ur fatahenginu sem eg er virkilega ósáttur með og svo síðast enn ekki síst þá týndi eg símanum minum.

Enn eg ætla að taka eitt loka djamm áður enn eg fer út til Tenerife i kvöld og það er einmitt Sálar ball á Nasa...án efa verður það eitthvað rosalegt

enn svo maður tali nu  um eitthvað annað enn skemmtun þá skellti eg mér til einhvers bæklunarlæknis i gær sem hefur annast dáltið íþróttameiðsl, þar sem bakið hefur verið að bögga mig mikið siðann i byrjun ágúst og hef eg þurft að pína mig áfram þegar eg er að hlaupa og ég fór beint i röntgen myndatöku eftir að hafa verið hja lækninum..reyndar ekki komið i ljós hvað þetta er...enn eg gæti þurft að hvíla mig dáltið lengi ! sem ég er ekki alveg að fíla !

Enn eg nenni ekki þessu bulli !

» 0 hafa sagt sína skoðun

16.11.2008 20:38:39 / oscar

..

Jáhh orðið annsi langt siðann siðast.

Fór á landsleikinn fyrir einhverju siðann og horfði á stelpurnar koma Íslandi i fyrsta sinn á lokakeppni evrópumótsins...þær standa alltaf fyrir sínu.

Svo er ég bara búinn að vera að vinna og æfa í sporthúsinu, búinn að vera að taka útihlaupin dáltið grimmt undanfarið, gæti líklega hlaupið maraþon nuna.

Svo er manni nu farið að langa pínu i fótbolta...veit samt ekki hvað maður gerir...hvort maður reynir að koma sér á æfingar hja einhverju góðu liði eða bara einhverju 3 deildarliði...frekar erfitt fyrir mig að vera að vinna við að múra allann daginn og ætla siðann að fara á einhverja erfiða æfingu um kvöldið svo er bakið líka alltaf að bögga mig enn þá.

Tók annsi rólega helgi núna, skellti mer nu samt i póker á grandann i gær...þar sem ég endaði i 2 sæti eins og örugglega i seinustu 20 skiptum sem eg fer i póker..ég endaði i blóðugri baráttu við bjössa i lokin þar sem hann rétt marði sigur.

ætli að þetta se ekki gott i bili...ætli að næsta færsla komi ekki eftir mánuð eða eitthvað ef það kemur önnur


» 5 hafa sagt sína skoðun

28.10.2008 23:06:59 / oscar

..

Djöfull er veturinn að fara illa i mig !  Eina sem eg geri þess daganna...Vinna, sporthúsið eftir vinnu og svo hef eg bara ekki orku i að gera neitt eftir það...ég reyni nú samt að kikja útá lífið á laugardögum...svona til að fá smá tilbreytingu i vikuna...ég er ekkert byrjaður að sparka i bolta, enda hef eiginlega ekki fundið fyrir neinni löngun til að spila fótbolta eftir sumarið ! skil það ekki...ég er reyndar byrjaður að hlaupa 10 km, 3 sinnum i viku og fer létt með það og svo lyfti eg alltaf eftir það, er að taka ca 6-7 æfingar i viku...fyrir ca viku var eg orðinn 88 kg útaf eg var nánast bara buinn að lyfta a fullu i allann vetur, það er aðeins of mikið...enn eg er buinn að ná mér niðrí 82 kg núna... hins vegar ætla eg að fara að taka þvi aðeins rólega því eg er buinn að vera hand ónýtur i bakinu siðann i byrjun ágúst og er buinn að vera bara þvílíkt bólginn...

Enn svo er landsleikurinn á fimmtudaginn...ætli að maður skelli sér ekki á laugardalsvöllinn og sjái Íslensku stelpurnar verða fyrstar til að tryggja íslandi sæti í lokakeppni i knattspyrnu

svo á föstudaginn ætlar finnur að halda partý i tilefni af afmæli sínu...maður kíkir á það !

» 2 hafa sagt sína skoðun

26.10.2008 22:31:43 / oscar

..

Jæja ýmislegt búið að gerast i lifi minu uppá síðkastið...ætla nu samt ekkert að fara að þylja það upp herna...allaveganna þar seinustu helgi vorum við að keppa á Firmamóti ÍR...við sýndum lipra takta á köflum og fórum i úrslitaleikinn...þegar i hann var komið voru menn orðnir annsi þreyttir og formið eitthvað að strýða mönnum og við töpuðum honum... um kvöldið fór ég, jón h , Sif rykær, einar h, bjössi og atli a á lokahóf KSI þar sem sálin var að spila...það var helvíti gott ball.
svo i gær fór ég á Nasa þar sem Ný dönsk voru að spila...þeir stóðu fyrir sínu eins og vanalega

» 2 hafa sagt sína skoðun

17.10.2008 21:25:03 / oscar

fótbolti og sálarball um helgina !

Jæææja annsi góð helgi framundan...á morgun erum við að fara að keppa á Firmamóti ÍR sem við skráðum okkur á ..loksins smá fótbolti aftur

Ég , Steinar , jón h , einar s , atli a , Gunnar au, einar h , Heiðar , kannski Sindri ragg og svo kannski markmaður sem sindri ragg ætlaði að reyna að redda...svona í fljótu bragði litið þá er ég ekki að sjá það lið sem er að fara að vinna þetta lið..

Svo er lokahóf KSI á morgun...enn eg ætla nú bara að láta mér nægja að fara á sálar ballið um annaðkvöld...það verður án efa geðveikt !!


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.10.2008 20:15:59 / oscar

Lokahóf

Jæja þá er þetta blessaða lokahóf búið og tókst það líka svona helviti vel...eg fór austur á föstud og fór þá nánast beint á æfingu og svo var póker eftir það og kíkt á víkina eftir það...

Við byrjuðum laugardaginn snemma og fórum útá fjörur klukkan 10:30 að leika okkur á fjórhjólum..sem var bara algjör snilld...eftir það fórum við á bryggjuna hjá bræðslunni þar sem björgunarsveitin var að draga okkur á spíttbát og við vorum á einhverjum svona hring með haldföngum á...allir voru i flotgöllum...nema ég var í kvart buxum og ber að ofan i björgunarvesti...frekar ruglað, þegar eg lenti i sjónum þá held eg að mér hafi aldrei á ævinni verið eins kalt...enn þetta var alveg fáránlega gaman... svo horfðum við á KR vinna VISA bikarinn i einum leiðinlegasta leik íslandssögunnar

Svo var lokahófið um kvöldið...sem var mjög gott...góð skemmtiatriði, greinilegt að skemmtinefndin hefur unnið heimavinnuna sína...eina sem var kannski ekki nógu gott var maturinn...hann fær algjöra falleinkunn..
Denis var valinn efnilegastur og Kiddi bestur og eru þeir held eg bara vel að þessum titlum komnir

Enn ég nenni ekki að hafa þetta lengra...kannski i næstu færslu að maður geri upp sumarið...ætli að það verði ekki eftir mánuð eða eitthvað


» 2 hafa sagt sína skoðun

29.09.2008 21:31:09 / oscar

..

ohh eg var að vona að eg væri buinn að gleyma passwordinu af þessari siðu svo eg þyrfti ekki að skrifa hingað inn

slatti búið að ske hjá mér siðann seinast...skellti mér i viku reisu til Costa del sol með honum stankó...það var alveg fáránlega nice...30 stiga hiti og "einn" kaldur á hverjum degi...annars er kannski ekkert mikið að segja um þessa ferð...það var bara aðallega legið i sólinni, reyndar var skellt ser i vatnagarð & tivoli...sem var allt i lagi sko...þótt það hafi ekki verið mikið sem lét adrenalínið flæða...svo var bara skellt sér út á kvöldin..

helgina áður enn við fórum út þá skellti ég mér á skímó ball á Nasa...þetta var annsi gott ball...enn eins og á flestum böllum a Nasa þá veit eg voða lítið

þessa daganna er ég svo bara að múra eins og enginn sé morgundagurinn

Svo það næsta sem er á dagskrá hja mer er lokahóf Sindra næstu helgi og svo er það Tenerife 20 des - 4 jan...  enn sjálfsagt verða einhverjir viðburðir þarna inná milli

Hann er flottur á vespunni !


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.09.2008 21:32:38 / oscar

Off season ! !

Já þetta Off season byrjaði nú aðeins fyrr enn eg reiknaði með...enn þótt það sé off season þá liggur maður nu ekki bara heima með tærnar uppí loft...fer nu daglega i sporthúsið og lyfti...reikna með að vera bara að lyfta fram að áramótum og hvíla mig aðeins frá fótbolta...enda er eg buinn að vera annsi slæmur i bakinu og ökklanum undanfarinn mánuð...fór til læknis um daginn og hann sagði mér að hvíla vel eftir tímabilið útaf það væru einhverjar þvilikar bólgur i bakinu a mer og það væri sennilega bara álagsmeiðsli...ég held að ég hafi keyrt mér dáltið út seinasta vetur..

enn nóg um það...á mánudaginn næsta eftir nákvæmlega viku er ég og steinar að fara til Costa del sol i 7 daga...það verður langþrátt frí...þetta verður nu eitthvað geðveikt...30° c og six pack á ströndinni...það getur ekki klikkað

Annars skellti eg mer á sálina á Brodway seinasta föstudag...það var nu eitthvað geðveikt...reyndar er það nu alltaf skothelt að fara á ball með sálinni !


» 1 hafa sagt sína skoðun

03.09.2008 12:08:15 / oscar

Vonbrigði lífs míns !!

Jæja þannig fór það...duttum út i gærkvöldi fyrir KV...þeir komust áfram á fleiri mörkum skoruðum á útivelli...við nottla byrjuðum ekki leikinn fyrr enn á 20 min þegar við vorum lentir 3-0 undir...það þarf mikla orku og mikinn karakter til að koma til baka eftir að vera lentir 3-0 undir...við gáfum allt i þetta og náðum að jafna 3-3 með 3 mörkum frá kidda fyrir hálfleik...sem var dáltið dýrt þvi hann meiddist og þurfti að fara utaf eftir 3 markið...i seinni hálfleik náðum við nokkrum góðum sóknum og þó nokkur færi, enn inn vildi boltinn ekki...það var svo seint i leiknum að þeir komust i 4-3 með marki eftir aukaspyrnu og þeir náðu að skalla boltann af fjörstöng uti teig þar var maður sem kláraði þetta...við náðum reyndar að jafna 4-4 a 93 min ur viti sem Seval skoraði úr...þannig við erum enn þá taplausir á Sindravöllum, enn það dugði ekki til...i þessum 2 leikjum við KV skoruðum við 6 mörk og vanalega ætti það að duga til að komast áfram...enn við gáfum þeim lika 6 mörk...
Maður er eiginlega ekki að skilja þetta því eg var það viss um að við ættum mjög mikla möguleika á að komast upp...þetta eru meiri vonbrigði heldur enn þegar við féllum ur 2 deildinni i fyrra þvi við lögðum mjög hart að okkur i sumar og það var helmingi minna djamm hja okkur heldur enn hefur verið undanfarin ár...enn vissulega var þetta frábært sumar hja okkur, enn bara ömurlegur endir

nuna hugsa eg að maður taki sér bara smá hvíld og hugsi næsta skref...hvað maður geri...maður er eiginlega ekki i andlegu jafnvægi þessa stundina til að hugsa um það..liklega verð eg ekki i skóla fyrir jól, verð bara að vinna...ætla lika að taka mer smá hvíld fra fótbolta og vera bara að lyfta allaveganna næstu vikurnar...

Svo er ég og steinar að fara út i viku...liklega bara i næstu viku...vitum reyndar ekki hvert...eitthvað ódýrt og þar sem er hægt að taka almennilegt Tan session


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.08.2008 11:58:06 / oscar

I love this game !

Á laugardaginn tókum við á móti Huginn á Sindravöllum i seinasta leiknum i riðlinum...fyrir leikinn voru þeir í 1 sæti, 2 stigum á undan okkur...það var ljóst fyrir leikinn að ekkert nema sigur myndi duga okkur til að hirða efsta sætið...
Það má segja að Huginn hafi ekki átt séns i 90 mín ! og við unnum mjög sannfærandi sigur 5-1.

Þá er komið að úrslitakeppninni og fengum við KV ur vesturbænum...Fyrri leikurinn verður á gervigrasinu hjá KR næstkomandi laugardag klukkan 1400 og vitanlega er skyldumæting á þann leik !! og seinni leikurinn verður þriðjudaginn eftir herna á Sindravöllum !


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.08.2008 16:08:59 / oscar

1 deildarleikur + úrslitakeppni eftir

Siðann ég ritaði herna inn seinast höfum við spilað 2 leiki...unnum Spyrni frekar sannfærandi herna á heimavelli 9-1 og svo fórum við á Dalvik og kepptum við Dalvik/reyni og töpuðum 3-0...mjööög slakur leikur af okkar hálfu og liklega sá slakasti i sumar...enn nuna er mjög mikilvægir leikir framundan og meigum við ekki við þvi að eiga annan svona leik i sumar...Við eigum Huginn hérna á Sindravöllum á Laugardaginn, það er hreinn úrslitaleikur um 1 sætið i riðlinum...ef við vinnum þá náum við 1 sætinu, enn jafntefli eða tap þýðir að við verðum í 2 sæti...svo byrjar úrslitakeppnin þar næsta laugardag..

Ég er búinn að vera annsi óheppinn með meiðsli undanfarið...á móti Spyrni tognaði eg illa á úlnlið og er nýfarinn að geta hreyft hann eitthvað af viti...svo er eg buinn að vera pínu meiddur aftaní læri/bakinu, leiðir pinu uppí bak og svo seinast i gær þá tognaði eg aðeins á ökkla á æfingu, þegar eg fór fyrir skot og fékk boltann framan á löppina og snérist aðeins uppá hana... enn vonandi að maður verði orðinn tilbúinn i leikinn næstu helgi á móti Huginn



» 0 hafa sagt sína skoðun

08.08.2008 21:28:40 / oscar

Sæti í úrslitum tryggt !!

Fórum á fáskrúðsfjörð i gær að keppa og unnum 2-1...kannski ekkert glæstur sigur, enn baráttu sigur..reyndar var völlurinn ekki að bjóða uppá mikinn fótbolta og alveg til skammar að bjóða uppá svona völl..þetta voru bara þúfur... enn við tryggðum þar með sætið okkar í úrslitakeppninni þrátt fyrir að eiga 3 leiki eftir...núna er bara að tryggja 1 sætið... næsti leikur er á miðvikudaginn á Sindravelli á móti Spyrni...


Uche að gera sig líklegan

Kiddi settann við mikinn fögnuð Sindramanna

Maður veit ekki hvor er tanaðari :)


» 5 hafa sagt sína skoðun

04.08.2008 23:33:36 / oscar

Þjóðhátíð 2008 ! Á eitthvað eftir að toppa það ?!

Ég held að það þurfi ekkert að ræða það neitt frekar ! held að þetta hafi verið besta djamm sem eg hef upplifað ! við vorum i bílskúrnum hjá steinunni..ég,Denis,Atli h, Einar s, Árni, jobbi og lena..svo var bjössi i tjaldi niðrí dal,finnur inni hja steinunni og einar h og gisli freyr komu a sunnudaginn...kannski að maður bara punkti niður hluta af helginni

  • fórum i party i ibuðina hja gisla reynis og þeim a laugard
  • meira enn nóg af slúðri og skandölum frá helginni sem eg ætla nu ekkert að fara nánar uti her
  • Ný dönsk geðveikir
  • í svörtum fötum alls ekki slæmir heldur
  • páll óskar var nokkuð góður í gær og ekki skemmdi rigningin fyrir...eitt blautasta ball sem eg hef farið á....það gerði þetta nu bara geðveikt !
  • i heildina var þetta bara geðveik helgi

Floooottir



Sennilega var þetta seinasta djammið i sumar og núna er bara að enda sumarið með stæl og koma sér aftur uppí 2 deild ! það væri ekki leiðinlegt !


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.07.2008 12:51:00 / oscar

Sindragolfmótið !

Seinasta laugardag héldum við hið árlega Sindragolfmót...H.Steinar vann það eins og við var búist...enn ég kom sjálfum mér annsi skemmtilega á óvart...mér gekk bara annsi vel...eg var kominn með 40 högg þegar eg átti 3 holur eftir...enn eg kláraði þær ekki útaf klukkan var orðin það margt,þannig við leyfðum bara þeim að klára sem áttu séns á að vinna... og ég hélt að ég væri ömurlegur i golfi, reyndar var þetta fyrsta Sindragolfmótið sem eg er ekki fullur á..



Svo er það þjóðhátíð nuna um helgina ! það verður nu eitthvað !


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 36
Íslensk fótboltalið